Sýningar
Sýningar

Sýningar (6)

Fimmtudagur, 05 Ágúst 2010 11:19

Hjóladagar

Hjóladagar tókust með ágætum og mættu yfir 200 manns inn á safn á föstudagskvöldinu. Katý bakaði vöflur eins og herforingi og allir fengu kaffi eða gos. Á laugardeginum var svo flott dagskrá á planinu hjá Brim og þar var góð mæting í góðu veðri. Um kvöldið hittust svo flestir í Sjallanum á balli með Sniglabandinu sem var frábært hjá þeim að vanda. Tían á miklar þakkir skilið, og eins allir sem komu að. Það er alveg á hreinu að hjóladagar eru komnir til að vera og stækka á hverju ári.
Miðvikudagur, 14 Júlí 2010 12:47

Hjóladagar næstu helgi

Þriðjudagur, 15 Júní 2010 00:22

Allir að mæta

Mánudagur, 07 Júní 2010 21:42

Nú styttist óðum í Bíladaga

Nú eru ekki nema 10 dagar í að við ætlum að halda sýningu á neðri hæð safnsins þann 17. júní. Allt er búið að ganga vel undanfarið og núna er verið að sparsla og grunna veggina, ýmislegt er þó eftir og nú verðum við að fá sjálfboðaliða næstu daga  og næstu helgi til að hjálpa. Það á eftir að ganga frá lýsingu, pússa og bóna gólfin, laga til og týna rusl úti ofl. Einnig á eftir að þrífa helling af hjólum og koma þeim inn á safn. Byggingafélagið Hyrna á Akureyri hefur ákveðið að gefa safninu innihurðirnar og þökkum við þeim mikið fyrir það. Endilega hafið samband ef þið getið hjálpað næstu daga í síma 8663500
Þriðjudagur, 27 Apríl 2010 23:21

Mótorsportsýning ofl

Mikil og flott dagskrá er á höfuðborgarsvæðinu í sambandi við 1. mai og verður safnið með 10 hjól, myndir ofl á risa mótorsportsýningu og mun fá hluta ágóða hennar, hér á eftir er dagskráin í heild sinni. Dagskrá 1. maí 2010 – Látum í okkur heyrast !   Hópakstur mótorhjólafólks 1. maí Þann 1. maí hefur um árabil verið haldin forvarnardagur Snigla með hópkeyrslu um borgina til að minna aðra vegfarendur á að mótorhjólin eru komin út á göturnar. Þetta ár er engin undantekning og er ætlunin nú sem fyrr að minna rækilega á okkur á götum borgarinnar og á sama tíma vekja athygli á málstað okkar en fyrir alþingi liggur frumvarp til nýrra umferðarlaga, þar sem lítið tillit er tekið til athugasemda mótorhjólamanna. Safnast verður saman á Laugaveginum frá klukkan 10:30, hann fylltur af mótorhjólum upp úr öllu (Laugarvegur…
Miðvikudagur, 24 Júní 2009 12:18

Sýningin

Sýningin 17. & 18. júní tókst vel og ágætlega mætt. Margir lögðu til mikla vinnu og þökkum við kærlega fyrir alla hjálpina. Tían mætti að kvöldi 18. og grillaði pylsur fyrir sýningargesti sem vel var tekið. Palli fór nokkra rúnta með krakka á Úral herhjólinu. Myndir frá sýningunni koma fljótlega í myndasafnið undir liðnum viðburðir.
  • th ridu hetjur um herod - forsida

    Safnið er í fjáröflunarskyni að selja bókina Þá riðu hetjur um héröð - 100 ára saga mótorhjólsinns á Íslandi. Bókin kostar 2990kr og má panta í hjá safnstjóra í síma 8663500 eða  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Sendum í póstkröfu utan Akureyrar. Lesa má um bókina hér.


    Villt þú leggja þitt af mörkum við uppbyggingu Mótorhjólasafns Íslands ? Nánari upplýsingar hér






Nýtt á spjallinu

Meira...


 

Molar

Þekkir þú gripinn ?

Þetta hjól fannst í ruslahaug á Djúpárbakka rétt  norðan Akureyrar fyrir nokkru og var fært safninu.

Nánar... Þekkir þú gripinn ?  

Umfjöllun

    um_heidda_small_web
    Heiddi

 

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistan okkar



Afritunarréttur © 2010 Mótorhjólasafn Íslands. Öll Réttindi Áskilin.
Joomla! er frír hugbúnaður gefinn út með GNU/GPL Leyfinu.

Innskráning

xhamster amazon