Jóhann Freyr Jónsson
Jóhann F. Jónsson (Jói Rækja) er safnstjóri mótorhjólasafns Íslands.
Vefslóð: http://www.motorhjolasafn.is Senda vini: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Vantar aðstoð
Hjóladagar
Gjöf frá JHM sport
Gjöf frá Sniglum
Nú styttist óðum í Bíladaga
Fréttir
Sýningin í borginni tókst vel og var glæsileg í alla staði, hefði mátt koma meira af fólki en umtalað var hvað hjóladeildin var vel uppsett og mikið af sérstökum, flottum gömlum hjólum sem mörg hafa aldrei áður verið sýnd opinberlega. Bar þar af Henderson hjólið hans Gríms sem sópaði til sín verðlaunum, enda stórkostlegur gripur. Safnið var með 12 hjól á sýningunni og sér svæði og mun fá hluta af aðgangeyri, upphæð verður tilkynnt hér þegar uppgjör er klárt.
Mótorsportsýning ofl
Dagskrá 1. maí 2010 – Látum í okkur heyrast !
Hópakstur mótorhjólafólks 1. maí
Þann 1. maí hefur um árabil verið haldin forvarnardagur Snigla með hópkeyrslu um borgina til að minna aðra vegfarendur á að mótorhjólin eru komin út á göturnar. Þetta ár er engin undantekning og er ætlunin nú sem fyrr að minna rækilega á okkur á götum borgarinnar og á sama tíma vekja athygli á málstað okkar en fyrir alþingi liggur frumvarp til nýrra umferðarlaga, þar sem lítið tillit er tekið til athugasemda mótorhjólamanna.
Safnast verður saman á Laugaveginum frá klukkan 10:30, hann fylltur af mótorhjólum upp úr öllu (Laugarvegur verður lokaður umferð á meðan) Keyrslan sjálf leggur af stað 11:30 niður Bankastræti og þaðan um Vonarstræti milli alþingis og ráðhúss Reykjavíkur, þar sem ætlunin er að láta aðeins heyrast í hjólunum og / eða flauta til að vekja athygli á málstað okkar. Leiðin liggur svo um Hringbraut, Bústaðaveg, Kringlumýrarbraut og Reykjanesbraut áður en keyrslan endar í Kauptúni gengt IKEA.
Tilbúinn árekstur
Um kl 13:00 á 1 maí verður mótorhjól látið falla úr 10 metra hæð til að líkja eftir árekstri mótorhjóls við fastan hlut á um það bil 50 km/klst. Fallið ætti að sýna vel höggið við árekstur mótorhjóls.
Hjólið verður til sýnis eftir „áreksturinn“ á sýningunni Burnout 2010 og „droppið“ verður myndað á high speed video vélar að hætti Mythbusters.
Íslandsmeistaramótið í hjólafimi - vegleg verðlaun
Klukkan 14:00 1. maí verður haldið Íslandsmeistaramót í hjólafimi. Keppt verður í tímamældri þrautabraut, þar sem úrslitin ráðast á tíma og tækni, en refsistig verða gefin fyrir villur í brautinni. Keppt verður á 125cc hjólum sem verða á svæðinu til að tryggja jafnræði.
Verðlaunin eru ekki af verri endanum
1. Verðlaun – 60.000 kr. Bensín úttekt frá Orkunni
2. Verðlaun – Hjálmur frá Suzuki umboðinu
3. Verðlaun – 20.000 kr. Gjafabréf frá IKEA
Stigahæsta kona – Dagsferð með Biking Viking mótorhjólaleigunni
Stigahæsti karl – Dagsferð með Biking Viking mótorhjólaleigunni
Hægt er að skrá sig til keppni með því að senda póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða á staðnum fyrir keppni. Skilyrði fyri þátttöku er að vera með mótorhjólapróf.
Glæsileg sýning
Dagana 30. apríl til 2. maí verður haldin Burnouthelgin 2010 sem er samstarfsverkefni Snigla, Kvartmíluklúbbsinns og BÍKR. Burnouthelgin 2010 mun bjóða upp á dagskrá við allra hæfi og þar á meðal sýningarviðburð sem verður sennilega sá stærsti síðan Sýningarhöllin Ártúnshöfða var og hét. BÍKR mun standa fyrir brautarrallý af bestu gerð og fleiri uppákomum á Samskipasvæðinu við Holtagarða. Á sýningunni verða sýnd um 200 tæki, sportbílar, kvartmílutæki og þar af um 100 mótorhjól á tæplega 8000 fermetrum.
Gamalt og sérstakt er markmið Snigla með mótorhjólahluta sýningarinnar en mótorhjól verða sýnd á um 2500 fermetrum og markmiðið að draga fram bæði gömul og sérstök mótorhjól. Á sýningunni verða margir fallegir gripir sem sumir hverjir hafa ekki verið sýndir áður svo sem Hendeson 1918 gert upp af Grími Jónssini. Ýrr í Tatoo bike verður með Airbrush á sýningunni og sprautar og selur boli. Einnig verða hjól sem hafa verið skreytt með Airbrush á sýningunni. Kynning verður á Mótorhjólasafni Íslands og margir gripir safnsins á svæðinu.
Innkoma Snigla af þessari sýningu mun öll renna til Mótorhjólasafns íslands (www.motorhjolasafn.is) og forvarnarverkefna á vegum umferðarnefndar samtakanna. Umferðarnefnd mun meðal annars dreifa límmiðum með áletruninni „Sérðu mótorhjól? – Líttu aftur!“ til að setja í bílrúður á sýningunni.
Ef þú hefur áhuga á að sýna hjól á sýningunni, hafðu samband við Berg í Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Biker Ball
Eftir að hafa hjólað frá okkur mest allt vit í hópkeyrslunni um daginn þá ætlum við að skemmta frá okkur því viti sem eftir er að kvöldi 1. maí á Players Kópavogi. Rokk/blues bandið Síðasti Séns leikur fyrir dönsum og djammi með DJ Mikkólf sér til halds og trausts.
Miðaverði hefur verið stillt í hóf og inn kostar litlar 1500 krónur íslenskar. Ekki þýðir að borga með erlendum gjaldeyri, við komust hvort eð er ekkert út til að eyða honum. Bandið samanstendur af þaulreyndum djammhundum sem marga fjöruna hafa sopið og DJ Mikkólfur hefur sopið þær tvær eða þrjár, enda fjöru áhuga maður mikill.
Rokk, Ról og Mótorhjól.
Sjálfboðaliðar athugið
-

Safnið er í fjáröflunarskyni að selja bókina Þá riðu hetjur um héröð - 100 ára saga mótorhjólsinns á Íslandi. Bókin kostar 2990kr og má panta í hjá safnstjóra í síma 8663500 eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Sendum í póstkröfu utan Akureyrar. Lesa má um bókina hér.
Villt þú leggja þitt af mörkum við uppbyggingu Mótorhjólasafns Íslands ? Nánari upplýsingar hér
Nýtt á spjallinu
- Vantar Hraðamæli á CBR600F 99 Hornet 09-04-2010 09:32:02 Sigrun
- Vegna:vantar afturdempara 09-02-2010 17:24:56 joi
- vantar afturdempara 08-02-2010 23:48:27 Gislisveins
- óska eftir tveimur mótorhjóla hljóðkútum 15-01-2010 20:01:40 smari
- Gömul númer 01-12-2009 23:26:47 Njall
- Z650 26-11-2009 09:40:10 kalligeir
- Vegna:Safnið 16-11-2009 11:57:01 joi
- Ýmis dekk til sölu 11-11-2009 23:45:12 joi
- Safnið 11-11-2009 22:57:50 Trausti
- gamalt hjól í smíðum 27-10-2009 18:04:53 Jómbi

